BORGARSJÁ I – samanburður ólíkra umhverfa
Byggt á fyrri rannsóknum um áhrif einstakra hönnunarþátta byggðs umhverfis á upplifun fólks var borgarumhverfi byggt í sýndarveruleika. Í umhverfinu var ákveðnum hönnunarþáttum, t.d. þakgerð, hæð húsa og gróðri, stýrt með kerfisbundnum hætti. Upplifun fólks í umhverfinu var svo metin með heildrænum hætti. Úrvinnslu gagna og greinarskrifum er lokið en rannsóknin er hluti af stærra verkefni sem enn er í vinnslu.